Prentstaður íslenskra bóka 2023
Bókasamband Íslands hefur kannað prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2023. Fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands eru 96 og fækkar um 13 frá fyrra ári, er 16,7% í ár en árið 2022 var hlutfallið 16,5% á prentun bókatitla innanlands. Fjöldi titla sem prentaður er erlendis er 479 eða 83,3% en var 551 eða 83,5% í fyrra.
Heildarfjöldi prentaðra bókatitla er 575 í Bókatíðindunum í ár en var 660 árið 2022.
Skoðað var hvert hlutfall prentunar innanlands og erlendis er eftir flokkum.
- Fræðibækur, bækur almenns efnis og listir eru alls 107; 45 42% prentuð á Íslandi og 62 58% prentuð erlendis.
- Skáldverk og ljóð, íslensk og þýdd, eru 203; 33 16% prentuð á Íslandi og 170 84% prentuð erlendis.
- Saga, ættfræði, ævisögur, handbækur, matur og drykkur eru alls 79; 11 14% prentuð á Íslandi og 68 86% prentuð erlendis.
- Barnabækur, íslenskar og þýddar, eru alls 186; 7 4% prentuð á Íslandi og 179 96% prentuð erlendis.
Eftirfarandi listi sýnir fjölda bóka prentaðra í hverju landi og hlutfall af heild, jafnframt eru til samanburðar tölur fyrir árið 2022:
| Árið 2022 Fjöldi titla % Ísland 109 16,5% Lettland 178 27,0% Þýskaland 127 19,2% Kína 65 9,8% Danmörk 62 9,4% Slóvenía 40 6,1% Eistland 31 4,7% Litháen 21 3,2% Svíþjóð 7 1,6% Noregur 7 1,6% aðrir 13 2,0% Samtals 660 100% | 
Fjöldi titla %
| Ísland | 96 | 16,7% | 
| Lettland | 203 | 35,3% | 
| Þýskaland | 82 | 14,3% | 
| Slóvenía | 48 | 8,3% | 
| Kína | 44 | 7,7% | 
| Danmörk | 36 | 6,3% | 
| Eistland | 28 | 4,9% | 
| Litháen | 18 | 3,1% | 
| Svíþjóð | 9 | 1,6% | 
| aðrir | 11 | 1,9% | 
| Samtals | 575 | 100% | 
Frekari upplýsingar veitir Georg Páll Skúlason, Grafíu – stéttarfélagi í prent- og miðlunargreinum. Netfang: georg@rafis.is og sími 5400100.