Hvers er sæmdin?
Málþing um höfundarétt og siðferði í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands,
miðvikudaginn 5. október kl. 15:00 – 16:30
Lífleg umræða hefur skapast að undanförnu um höfundarétt, brot á honum og gráu svæðin sem höfundalög ná ekki yfir. Þegar rannsóknir, hugmyndir eða útfærsla þeirra verða kveikja eða innblástur að nýju verki, eða þegar verk verður til á grundvelli eldra verks, sleppir höfundalögunum. Ætti slík nýting að falla undir sæmdarrétt í lögum? Hvar liggja mörkin?
Rithöfundasamband Íslands og Hagþenkir – félag höfunda fræðirita og kennslugagna taka þátt í þessari umræðu með málþingi þar sem velt er upp spurningum og álitamálum.
Dagskrá
Þegar höfundalögunum sleppir – tengsl höfundaréttar og siðfræði
– Sigrún Ingibjörg Gísladóttir lögmaður
Er ritstuldur stuldur?
– Jón Ólafsson heimspekingur, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands
#Metoo Höfundavörn
– Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur
Lagagreinar og bókmenntagreinar
– Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands
Pallborð – umræður
Fundarstjóri: Sigríður Hagalín Björnsdóttir rithöfundur