Átaksverkefni í menningu og listum á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis vorið 2020.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur veitt Miðstöð íslenskra bókmennta 38 milljóna viðbótarfé, samkvæmt þingsályktun um sérstakt tímabundið fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Veittir verða styrkir sem styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði lista og menningar með áherslu á sköpun og virka þátttöku listamanna í menningarlífi landsmanna. Sjá nánar á heimsíðu Miðstöðvar íslenskra bókmennta. https://www.islit.is/frettir/midstod-islenskra-bokmennta-aukauthlutun-styrkja
Umsóknareyðublöð eru hér https://form.islit.is
Umsóknarfrestur er til 11. maí 2020.
Skilyrði fyrir styrkveitingu
• Verkefnið hefjist eigi síðar en 1. september 2020 og verði lokið fyrir 1. apríl 2021.
• Verkefnið uppfylli grunnmarkmið fjárfestingarátaksins um að styðja við eftirspurn og atvinnu til skamms tíma með arðbærum verkefnum.
• Sýnt sé fram á gildi verkefnis og mikilvægi þess fyrir landsmenn.
• Styrkveiting sé til undirbúnings, þróunar og framkvæmdar verkefnis.
• Ítarlegar upplýsingar liggi fyrir um verkefnið, auk kostnaðar- og tímaáætlunar þess.
• Ekki verða veittir styrkir til stofnana sem eru á fjárlögum ríkisins.
Mat á umsóknum og styrkir verða veittir á sama grundvelli og aðrir styrkir Miðstöðvar íslenskra bókmennta.
Úthlutað verður fyrir 1. júní nk.
________________________________________________________________________________
Árangur
Athygli er jafnframt vakin á að fjármála- og efnahagsráðuneyti mun taka saman skýrslu um hvernig tekist hafi til með fjárfestingarátakið og hvort settum markmiðum um að stuðla að því að flýta mannaflsfrekum og arðbærum verkefnum hafi verið náð.
Ábyrgðaraðilar einstakra verkefna gera grein fyrir eftirfarandi forsendum sem voru lagðar til grundvallar átakinu:
· Hversu mörg störf voru sköpuð
· Hvernig var dreifing á störfum um landið
· Hvernig skiptust störf milli kynja
· Var styrkjum úthlutað með opnum og gagnsæjum hætti
· Var tekið mið af markmiðum um fjölbreytileika verkefna
· Að hve miklu leyti munu fjárveitingar vegna átaksins skapa svigrúm fyrir önnur verkefni á gildistíma fjármálaáætlunar.