Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna

Tilnefningarnar voru tilkynntar á Kjarvalsstöðum 1. des en forseti Íslands afhendir verðlaunin um mánaðamótin janúar og febrúar. Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki fræðirita og bóka almenns efnis: Árni Heimir Ingólfsson, Saga tónlistarinnar. Forlagið. Bergsveinn Birgisson. Leitin að svarta víkingnum.  Bjartur. Guðrún Ingólfsdóttir. Á hverju liggja ekki vorar göfugu kellíngar. Háskólaútgáfan. Ragnar Axelsson. Andlit norðursins. Crymogea. Viðar Hreinsson. Jón lærði og náttúrur náttúrunnar. Lesstofan. Dómnefnd skipuðu: Aðalsteinn Ingólfsson, formaður nefndar, Hulda Proppé og Þórunn Sigurðardóttir.

 

Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki barna- og ungmennabóka:

Hildur Knútsdóttir
Vetrarhörkur
Útgefandi: JPV útgáfa

Hildur Knútsdóttir og Þórdís Gísladóttir
Doddi : bók sannleikans!
Útgefandi: Bókabeitan

Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir
Íslandsbók barnanna
Útgefandi: Iðunn

Þórhallur Arnórsson og Jón Páll Halldórsson
Vargöld : fyrsta bók
Útgefandi: Iðunn

Ævar Þór Benediktsson
Vélmennaárásin
Útgefandi: Mál og menning

Dómnefnd skipuðu: Árni Árnason, formaður nefndar, Hildigunnur Sverrisdóttir og Sigurjón Kjartansson.

Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki fagurbókmennta:

Steinar Bragi
Allt fer
Útgefandi: Mál og menning

Sjón
Ég er sofandi hurð (Co Dex 1962)
Útgefandi: JPV útgáfa

Guðrún Eva Mínervudóttir
Skegg Raspútíns
Útgefandi: Bjartur

Auður Ava Ólafsdóttir
Ör
Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa

Sigurður Pálsson
Ljóð muna rödd
Útgefandi: JPV útgáfa

 Dómnefnd skipuðu: Knútur Hafsteinsson, formaður nefndar, Helga Ferdinandsdóttir og Jórunn Sigurðardóttir