Gunnarsstofnun auglýsir eftir umsóknum um dvöl í Klaustrinu árið 2014

KLAUSTRIÐ er dvalarstaður fyrir innlenda og erlenda lista- og fræðimenn, rithöfunda, þýðendur og tónskáld. Dvalargestir fá til endurgjaldslausra afnota litla íbúð í Gunnarshúsi á Skriðuklaustri um
3-6 vikna skeið til að vinna að fyrirfram ákveðnum verkefnum. Samkvæmt reglum um úthlutun skulu verkefni er varða Gunnar Gunnarsson, Austurland eða austfirsk fræði njóta forgangs.

 

Sækja skal um dvöl í Klaustrinu á þar til gerðu eyðublaði og senda það í pósti eða tölvupósti til Gunnarsstofnunar. Í umsókn þarf að koma fram auk almennra upplýsinga um umsækjanda, að hverju viðkomandi hyggst vinna og hvaða tímabil sé heppilegast.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og umsóknareyðublað á vefslóðinni:

http://www.skriduklaustur.is/index.php/is/gestaibud

Senda skal umsóknir á Gunnarsstofnun, Skriðuklaustri, 701 Egilsstaðir eða á netfangið klaustur@skriduklaustur.is.