Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir umsóknum um eftirtalda styrki:
Starfsstyrkir til ritstarfa
Til úthlutunar eru 14.000.000.- kr.
Starfsstyrkir vegna handritsgerðar fræðslu- og heimildarmynda
Til úthlutunar eru 600.000.- kr.
Ferða- og menntunarstyrkir fyrir félagsmenn Hagþenkis
Til úthlutunar á vorönn eru 2.500.000.- kr.
Umsóknarfrestur 2. apríl – 16. apríl kl. 15
Allar nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, rafræn eyðublöð og eyðblöð fyrir skilagreinar eru á heimasíðu félagsins: www.hagthenkir.is
Umsækjendur fá rafræna staðfestingum um að umsókn hafi borist og gildir hún sem kvittun.
Fylgiskjöl með umsókn skulu send í póst og eru þau geymd í eitt ár en síðan fargað ef þau eru ekki sótt.
Skrifstofa félagsins er á Hringbraut 121, 4. hæð, sími 551-9599, netfang hagthenkir@hagthenkir.is