Eftirfarandi höfundar og verk þeirra eru tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis fyrir árið 2010:
Eysteinn Þorvaldsson
Grunað vængjatak – Um skáldskap Stefáns Harðar Grímssonar
Háskólaútgáfan
Vönduð úttekt á skáldskap merks höfundar og eftirtektarverð ferð um lendur íslenskrar ljóðlistar á umbrotaskeiði
Guðni Th. Jóhannesson
Gunnar Thoroddsen – Ævisaga
JPV útgáfa
Ýtarleg ævisaga litríks stjórnmálaforingja sem bregður skýrri birtu á stjórnmál og samfélag á 20. öld og stjórnmálamenningu nútímans
Gunnar Hersveinn
Þjóðgildin
Skálholtsútgáfan
Hógvær en beitt rökræða um þau kjölfestuhugtök og gildi sem íslensk menning þarfnast við uppbyggingu þjóðar
Helgi Hallgrímsson
Sveppabókin – Íslenskir sveppir og sveppafræði
Skrudda
Stórbrotið fræðirit og frumsmíð um smágerða veröld sveppa á Íslandi sem byggir á hálfrar aldar rannsóknum með grundvallandi nýyrðasmíð
Ingimar Sveinsson
Hrossafræði Ingimars
Uppheimar
Brautryðjandaverk og alhliða upplýsinga-, kennslu- og fræðirit fyrir leika og lærða á sviði hrossahalds og tamningar
Kristín Loftsdóttir
Konan sem fékk spjót í höfuðið – Flækjur og furðuheimar vettvangsrannsókna
Háskólaútgáfan
Frumleg greining á vettvangsrannsókn í framandi menningu sem hefur aðferðafræðilegt gildi og varpar ljósi á mót menningarheima
Sigrún Pálsdóttir
Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar
JPV útgáfa
Nýstárleg rannsókn á sjálfsmynd og ævi konu sem sýnir ferskt sjónarhorn á sögu 19. aldar og tengslin við Danmörku
Una Margrét Jónsdóttir
Allir í leik. Söngvaleikir barna, I-II
Bókaútgáfan Æskan
Menningarsögulegt stórvirki um söngvaleiki barna á 20. öld í tali, tónum og látbragði með samanburði við eldri hefðir á Íslandi og leiki í nágrannalöndum
Unnur Birna Karlsdóttir
Þar sem fossarnir falla. Náttúrusýn og nýting fallvatna á Íslandi 1900-2008
Hið íslenska bókmenntafélag
Kraftmikið fræðirit um djúpstætt ágreiningsmál sem lengi hefur skipt þjóðinni í fylkingar og setur náttúrusýn og orkunýtingu í sögulegt samhengi
Þröstur Helgason
Birgir Andrésson – Í íslenskum litum
Crymogea
Fjölþætt og persónulegt fræðirit þar sem listamaður birtist okkur í þjóðlegu og alþjóðlegu samhengi í listrænu bókverki
Viðurkenningarráð Hagþenkis
Viðurkenningarráði Hagþenkis fyrir árið 2010 skipuðu:
Þórður Helgason bókmenntafræðingur, formaður, Geir Svansson bókmenntafræðingur og þýðandi, Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur, Kristín Unnsteinsdóttir uppeldis- og kennslufræðingur og Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur og ljósmyndari. Verkefnastýra ráðsins er Friðbjörg Ingimarsdóttir.