83,3% bókatitla prentaðir erlendis

Prentstaður íslenskra bóka 2023

Bókasamband Íslands hefur kannað prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2023. Fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands eru 96 og fækkar um 13 frá fyrra ári, er 16,7% í ár en árið 2022 var hlutfallið 16,5% á prentun bókatitla innanlands. Fjöldi titla sem prentaður er erlendis er 479 eða 83,3% en var 551 eða 83,5% í fyrra.

Heildarfjöldi prentaðra bókatitla er 575 í Bókatíðindunum í ár en var 660 árið 2022.

Skoðað var hvert hlutfall prentunar innanlands og erlendis er eftir flokkum.

  • Fræðibækur, bækur almenns efnis og listir eru alls 107; 45 42% prentuð á Íslandi og 62 58% prentuð erlendis.
  • Skáldverk og ljóð, íslensk og þýdd, eru 203; 33 16% prentuð á Íslandi og 170 84% prentuð erlendis.
  • Saga, ættfræði, ævisögur, handbækur, matur og drykkur eru alls 79; 11 14% prentuð á Íslandi og 68 86% prentuð erlendis.
  • Barnabækur, íslenskar og þýddar, eru alls 186; 7 4% prentuð á Íslandi og 179 96% prentuð erlendis.

Eftirfarandi listi sýnir fjölda bóka prentaðra í hverju landi og hlutfall af heild, jafnframt eru til samanburðar tölur fyrir árið 2022:

Árið 2022              Fjöldi titla          % Ísland 109 16,5% Lettland 178 27,0% Þýskaland 127 19,2% Kína 65 9,8% Danmörk 62 9,4% Slóvenía 40 6,1% Eistland 31 4,7% Litháen 21 3,2% Svíþjóð 7 1,6% Noregur 7 1,6% aðrir 13 2,0% Samtals 660 100%                                  

 

                               Fjöldi titla          %

Ísland9616,7%
Lettland20335,3%
Þýskaland8214,3%
Slóvenía488,3%
Kína447,7%
Danmörk366,3%
Eistland284,9%
Litháen183,1%
Svíþjóð91,6%
aðrir11     1,9%
Samtals575    100%
   
   
   
   
   
   
   
   

Frekari upplýsingar veitir Georg Páll Skúlason, Grafíu – stéttarfélagi í prent- og miðlunargreinum. Netfang: georg@rafis.is og sími 5400100.